Thursday, September 30, 2004

Slappedíslapp

Ég er nú alveg hræðilegur bloggari. Nenni ekkert að vera að tjá mig á heimspekilega um menn og málefni. Þýðir þetta að ég sé orðin algerlega skoðunarlaus á öllum málum? Kannski er þetta bara í rökréttu samhengi við annasama tíma, fulla vinnu og tvö börn. Ég er auðvitað eftirá með flest í mínu lífi, óska ættmönnum til hamingju með afmælið að meðaltali mánuði eftir að afmælið var haldið, vefsíða Íslendingafélagsins hefur ekki verið uppfærður síðan í júlí og myndasíðan okkar er textalaus.

Í síðustu viku kom í ljós að litla barnið Baldur (18 mánaða) hefði lent í digital myndavéla gildrunni. Það eru til hundruðir mynda af honum. Síðustu útprentuðu myndirnar af honum voru af honum 5 daga gömlum. Ég get annaðhvort pantað útprentaðar myndir af honum og bætt þeim í hrúguna af 3 ára ófrágengnum myndum, gengið frá öllum myndunum og svo pantað útprentanir (líklegt) eða bara yppt öxlum og gleymt þessu. Vonandi týnist þetta bara ekki af tölvunni.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

uss uss uss... hann verður sár þegar hann verður stærri og ætlar að skoða barnamyndirnar sínar... eins gott að taka bakköpp af tölvunni. Annars gæti æska hans horfið...
Gaman að þú skyldir hafa bloggað.
Þín baby sis Ra

3:56 PM  
Blogger Una said...

diddó!

5:57 PM  

Post a Comment

<< Home