Tuesday, September 06, 2005

Get ekki verið svona löt

Una búin að setja krækju á þennan blogg svo ég ætla að blása í hann lífinu. Ég var að tala við hana í gegnum Google Talk. Alltof skemmtilegt, ég hleypti henni ekki úr símanum og við blöðruðum og blöðruðum. Ég er að endurupplifa ár mín í Hollandi í gegnum hana, hún er að versla í Albert Heijn versluninni eins og ég gerði, skiptir við ABN AMRO bankann eins og ég gerði, keypti sér notað hjól... ætla að fara að kaupa sér þvottapoka í Hema. Ég er enn að nota þvottapokana sem ég keypti í Hema (svona Rúmfatalager...). Una fær ekki að eiga eina einustu upplifun í friði fyrir mér.

Jæja, best að hætta á þessu nostalgíutrippi og koma sér að vinnu. Það er nóg að gera.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home