Monday, June 07, 2004

Útilega

Fórum í útilegu síðustu helgi. Baldur stóð sig vel og svaf eins og ekkert hefði í skorist. Svo þegar við komum heim sofnaði hann klukkan 5 síðdegis og svaf í einum dúr til 7 morguninn eftir. Ég vaknaði upp með andfælum og hélt að það væri eitthvað að...

Er annars að drepast úr harðsperrum eftir fjallgöngu laugardagsins. Verð að vera duglegri að æfa.