Lestin
Við Snorri og Una fórum á Train tónleika í Montalvo í Saratoga í gær. Tónleikarnir voru hreint út sagt frábærir, og ekki skemmdi tónleikaaðstaðan fyrir. Þetta var haldið á frekar litlum stað upp í fjöllunum á vínbúgarði og umhverfið allt var mjög skemmtilegt. Við mættum frekar snemma því við þurfum að leggja niður í bæ og taka litla rútu upp í fjöllin. Una hafði smurt samlokur og við mauluðum þær fyrir tónleikana með víni sem var þarna til sölu. Svo voru tónleikarnir alveg frábærir og við keyrðum glöð til baka til Fremont seint um kvöldið. Steinunn var heima hjá Baldri á meðan.